1.5.2008 | 13:49
Ekki hægt að setja bryggjuna á flot í dag.
Það var of hvasst til að við gætum sett bryggjuna út í dag, eins og stóð til. Gengið var frá fenderum á hornin, vatnslagnir tengdar, ath. útleiðslu í rafmagni, skráð niður efni sem þarf að taka með næst, nestið borðað og farið svo heim.
Við förum aftur snemma á laugardagsmorgun og klárum allt sem þarf að gera. Bóndinn á Hálsi kemur svo um hádegi, með tæki til að ýta bryggjunni á flot.
Steini og Hafliði að festa hornið á.
Hafliði og Árni að athuga með útleiðslu í rafmagninu.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.