Bloggfærslur mánaðarins, júní 2008

Bakkafjöruhöfn, mesta flopp íslandssögunnar.

Það eina sem þessi höfn getur orðið að gagni er að hún mun auka ferðamannastraum. Ekki farþega sem fara um höfnina, heldur fólk sem kemur á Bakka til að virða fyrir sér mesta flopp íslandssögunnar. Það er með ólíkindum að enginn skuli geta stöðvað þetta bull.

það liggur fyrir að höfnin í Eyjum er orðin of lítil. Hingað koma einungis minnstu skemmtiferðaskipin og flutningaskip fara stækkandi. það er bara tímaspursmál hvenær öll gámaflutningaskip verða það stór, að þau komast ekki inn til Eyja. Þegar svo er komið verður að flytja alla gáma til og frá Eyjum með ferju til lands og þaðan á bíl til Reykjavíkur. Ef strandflutningar verða teknir upp aftur myndi það leysa málið að nokkru leiti. En það gengur ekki, að allur ferskur  fiskur sem fluttur er út frá Eyjum þurfi að fara fyrst til Reykjavíkur.

Samgöngumál Vestamannaeyinga verða best leyst með því að gera stóra höfn fyrir utan Eiðið. Síðan að fá stærri Herjólf, sem gengur 20 til 25 mílur í logni. Bara það að þurfa ekki að fara fyrir Klettinn styttir ferð núverandi Herjólfs milli Eyja og Þorlákshafnar upp undir hálf tíma. Síðan mætti sameina hafnirnar með því að loka á milli garðana og opna í gegnum Eiðið.

  


Humarveisla um borð í Golu.

Við við skruppum út undir Bjarnarey í gær, til að ná okkur í fisk. Það hvessti á okkur, þannig að ekkert hafðist upp úr krafsinu, nema ein ýsa. Hallgerður bloggaði um fiskleysið þegar við komum í land. Innan við klukkutíma síðar kom Þórarinn í Geisla og færði okkur stóran poka af Eldeyjarhumri.

Við grilluðum humarinn í gærkvöldi. Ég sendi hér nokkrar myndir af kræsingunum. Það eru fleiri myndir sem við höfum tekið í ferðinni í myndamöppunni. Ég læt þar inn nýjar myndir eftir því sem þær verða til.

Nú erum við hér áttunda daginn í sól og blíðu. Samkvæmt veðurspá fer að verða breyting á. Enda varla hægt að reikna með svona blíðu tvær vikur í röð. Vonandi verður rigningin gengin yfir um næstu helgi, þá á að halda upp á að 35 ár eru liðin frá goslokum.

Hallgerður að undirbúa veisluna.Hallgerður stýrimaður að undirbúa veisluna. Við bökuðum brauði á grillinu.

 

 

 

 

 

 

Humarinn frá Þórarni í Geisla tilbúinn á grillið.Nú er humarinn tilbúinn á grillið.

 

 

 

 

 

 

Grillað í veðurblíðunni.Þá er bara að skella honum á.

 

 

 

 

 

 

Hallgerður stýrimaður.Hallgerður sest að snæðingi.


Myndir frá hringferð um Eyjar.

IMG 1778

IMG 1777

IMG 1776

Klettsvík

Klettsvík.

IMG 1787

IMG 1786

Klettsvík

Klettsvík.

Klettsvík.


Silgdum í blíðunni í dag.

Félagar á landleiðVið fórum í siglingu kringum Heimaey í dag. Þið getið lesið nánar og skoðað myndir úr ferðinni síðar í dag, á blogginu hjá Hallgerði.

Við mættum þessum félögum sem ég sendi mynd af í morgun, þegar þeir voru að leggja í hann. Hér eru þeir á landleið.

 

 

 

 

Hallgerður stýrimaður.Hér má sjá stýrimanninn njóta veðurblíðu og siglingar. Það má velta því fyrir sér, vegna skrifa hennar í morgun. Sýnist hún vera dekruð kærasta, eða þjökuð eiginkona, ég bara spyr ?

Vera hér í Eyjum er tóm hamingja, en bara rétt að byrja. Þegar við erum búin að snæða saltfiskinn og þann signa sem til er um borð, förum við út og rennum fyrir fisk.

Það sem af er túrnum höfum við ekki borðað annað en það sem kemur úr sjónum. Vesta er að fuglinn er búinn. Þegar við sigldum fram á nokkrar Langvíur áðan, vorum við komin of nálagt Heimakletti, til að ég hefði kjark til að skjóta. Nú fara allar kerlingar, af báðum kynjum á límingunum og segja að fuglinn sé friðaður. Ég veit það vel, en hefði samt tekið þessar fjórar sem þarf í matinn, hefðu þær verið sunnan við Eyjuna.

 

 


Flestir Eyjabátar eru á sjó í dag.

Fast þeir sóttu sjóinnÞessir félagar réru í morgun, veiðafærið er sjóstöng. Það er ekki mikið pláss fyrir afla. Ef vel veiðist verður aflinn trúlega seilaður utan á bátinn.

Við höfum það fínt hér í blíðunni í Eyjum. Förum í siglingu eftir hádegi. Það er ekki búið að ákveða hvert, en við komum við í Klettsvík. Trompetið er ekki með, svo ég syng fyrir stýrimanninn þegar við komum í hellinn. Ég notast við annarra texta, en ég syng aldrei annarra lög, af óviðráðanlegum orsökum.


Gola RE 945 komin til Eyja.

Við komum hingað í eftirmiðdaginn í gær, í logni og sól. Fengum gott lens frá Grindavík, vestan 8 til 10 m/sek. Þegar við áttum eftir 3 mílur í Eyjarnar, datt hann í logn. Stýrimaðurinn segir mér að hér sé alltaf gott veður. Í dag er frábært veður líka, það skildi þá ekki vera eitthvað til í þessu. Við höfum verið að spóka okkur í bænum í dag. Hallgerður hefur verið að lýsa fyrir mér hvernig þetta var allt saman fyrir gos.

Í kvöldmatinn verður svartfugl, bringurnar hafa legið í marineringu frá því í morgun. Eldamennskan á honum verður þannig að við rétt "sýnum" honum grillið, síðan pakkað inn í álpappír meðan kartöflurnar eru brúnaðar.

Þar sem við verðum hér næstu tvær vikurnar ætlum við að hitta hafnarvörð þegar hann kemur til vinnu á mánudag, og reyna að fá pláss við flotbryggju og landrafmagn, það er ágætt að lostna við að keyra ljósavél.

Við ætlum að segja frá því sem fyrir augu ber, meðan við erum hér. þeim sem vilja fylgjast með er bent á að lesa líka bloggið hjá stýrimanninum, leitarorðið þar er, hallgerður. Það er óþarfi að við séum að endurtaka sömu hlutina á báðum síðunum.


Hnísa...

HnísaEr svona ykkur að segja lostæti. Enda sjáið myndina rennilegur og flottur fiskur. Sem verður svona sirka 1,5-2-0 metrar á lengd. Verða sjaldnast þyngri en 50-70 kg.

Og kafar ekki djúpt, hangir þess vegna utan í bátum. Hnísan  er á grunnsæfi eins og þið vitið.

Fiskinn veiddi,og gaf okkur, Önundur Kristjánsson móðurbróðir minn, skipstjóri og eigandi að Þorsteini GK 15, sem gerður er út frá Raufarhöfn. Hnísan var grilluð í kvöld. Skuldlaust. Gurme.

Ég var nokkuð djarfur með kryddið. Setti á kjötið eitthvað sem var til um borð, ekki svo naugið með það. Bara að þefa þar til maður er sáttur. Sýndi sneiðunum grilli í sirka 4 mín. á hlið, lét síða "soðna" í álpappír meðan ég brúnaði kartöflur. Borið fram með piparsósu, ristuðum sveppum, sykurhúðum kartöflum og Ora baunum. Getur ekki klikkað. Eftirréttur, sterkt kaffi og snaps af Gamaldansk.


Styttri túr á Golu RE 945 en áætlað var.

Við vorum búin að áætla að fara á föstudagskvöldið í Hvammsvík og vera þar fram á mánudag, en vera í Reykjavíkurhöfn á 17. júní. En veðurspá breyttist, það á að ganga í NA. leiðindi aðra nótt. Allar A. áttir eru afleitar í Hvammsvík. Að vísu spá ekki allar spástöðvar þessu, sumar spá betur. Það er Belgingur sem er svartsýnastur núna. Við ákváðum að miða ferðalagið við spána á Belging. Hann hefur oftast reynst nokkuð sannspár, en ekki síst þar sem við erum að sigla okkur til ánægju miðum við oftast við svartsýnustu veðurspá.

Við sigldum því í Þerney í gærkvöldi, vorum þar í nótt, en erum nú í Reykjavíkurhöfn. Sjáum til á morgun hvað við gerum þá.

Skipstjórinn.Skipstjórinn nokkuð ánægður með sig, enda að norðan.

 

 

 

 

 

 

Stýrimaðurinn.Stýrimaðurinn fékk sér bauk og fór í tölvusalinn að blogga þegar við komum í Þerney.

 

 

 

 

 

 

Áhöfnin á Axel Sveinssyni.Hallgrímur, á Axel Sveinssyni kom með vini sína. Þeir grilluðu fisk, sem þeir höfðu ný lokið við að veiða.

Við helltum upp á kaffi og buðum þeim eftir matinn. Hallgrímur bauð upp á koníak og tertu með kaffinu.

 

 

 

 

Stýrimaðurinn.Stýrimaðurinn átti stímið í Reykjavíkurhöfn.


Brotin bryggja, ekki lengur.

Hvammsvíkurnefnd fór seinni partinn í dag og gerðum við langband sem var brotið í Bryggjunni í Hvammsvík. Við fórum uppeftir á bátnum hans Hafliða, Lilju. Frábær bátur. Ég fullyrði, fyrir mína parta að Lilja er lang flottasti báturinn í Snarfara, jafn vel þó að Gola RE 945 sé talin með. Hér koma nokkrar myndir sem sýna framkvæmdina.

Hafliði

Árni.

Hafliði og Steini.

Hafliði og Steini.

Hafliði og Árni.

Hafliði og Árni

Hafliði og Árni

Hafliði og Árni

Hafliði og Steini.

Steini

Hafliði og Steini.

Verki lokið.


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband