Bloggfærslur mánaðarins, apríl 2011

Sleppa..

Nú verður lagt úr vör enn eitt vorið. Tilhlökkunin allaf sú sama. Ný gleði tilfinning. Nýtt vor inn í sumarið 2011..

Gola Re 945 sem ný eftir dekur vetrarins..Aldrei fallegri. Árni hefur dvalið í ,,Höll hins himneskra" friðar hvern laugardag sem gvöð hefur gefið í vetur og gert henni til góða.

Í góðum selsskap frábærra vina sem eru þar í sama tilgangi. Allt flottir peyjar sem eiga þetta sama áhugamál að sigla..

Ólíkir menn sem taka slaginn um pólitík. Menn sem virða skoðanir hvors annars..Kunna samræðulistina sem er afrakstur þess að eldast. Þroskinn, virðingin fyrir skoðunum annarra.

Stefnan er tekin á Eyjarnar í sumarfríinu. ,,Hún er demantur drottins í sænum, hún er djásnið í möttlinum hans" Orti Hafsteinn föðurbróðir minn.

 

 


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband