Bloggfærslur mánaðarins, júlí 2010

Octopus er aðeins stærri en Gola RE 945

Við hjónin fylgdumst með þegar snekkjan sigldi inn á Miðbakkann.Octopus. Dásamlega fallegt skip eins og Golan og svipuð i öllum aðalatriðum nema ef vera skyldi þyrlurnar og kafbátarnir.

Höfum ekki séð ástæðu til þess að fjárfesta í slíkum búnaði. Enda segir Skipberinn stundum að stýrimaðurinn sé kafbátur útaf fyrir sig?

Stýrimaður Golu RE 945 stóð á Miðbakkanum og tók við endunum á Octopus enda vön kona..

Vinur Bill Geitssonar hreyfst svo af vönduðum vinnubrögðum að hann bauð mér í mat.

Því miður átti ég ekki heimangengt, Stjáni Blái hafði sett þverskorna ýsupíku í pott. Bað um að eiga matarboðið það inni.

Hallgerður stýrimaður.Ekkert mál sagði blessaður maðurinn. Þetta mun vera stærsta skemmtiferðaskip í einkaeigu í heiminum. Þó á fyrirtækið tvö önnur.

Komst ekki hjá því að spá í hvort það væri elskast meira í stórum skipum en aðeins minni ? Wink

Auðvitað kemst ég aldrei að því harðgift konan svo hjálpi mér gvöð.

Nóg hefur sá sem sér nægja lætur sagði amma iðulega. Og var þá ekki að tala um svona ósköp. Heldur hvort hún ætti til hnífs og skeiðar...


Síðasta vígið fallið!

Ég verð að viðurkenna það. Skipstjórinn um borð í Golu RE 945 bað um smá aðstoð við að baka upp jafning með bjúgum.

Árni við Valtý. ( Er hann ekki sætur stelpur )?

Ekkert mál gæskurinn ég skal sýna þér það, en þetta er vandi! Það  hlakkaði smá í undirmanninum yfir væntanlegu slysi. Munandi enn eftir fyrsta jafningi mínum sem fór í kekki hjá ný giftri konunni a öldinni sem leið.

Nema hvað, þetta lék í höndunum á manninum. Allt er í heiminum hverfullt. En meðal annarra orða, þarf að sjóða hveitijafning í 5 mínútur?

Skrifað í 101 Reykjavík anno 2010 á fimmtudegi.

 


Nornaveiðar eru öllum frjálsar á Íslandi.

Eftir því sem ég kemst næst er engin kvóti á þeim veiðum einhverra hluta vegna. Við þurfum ekki einu sinni að segja til nafns? Bara vera nösk á hver er ögn verri en við sjálf. Og að sjálfsögðu koma fyrirlitningu okkar til skila.

Enda margir sem róa á þau mið. Það þarf ekkert að borga og engin spyr um nafn. Ég hef verið að fylgjast með strandveiðunum af gefnu tilefni. Tengdasonum minn stundar þær með góðum árangri. Á veturna er hann í námi.

Hann þarf að gefa upp tekjur sínar sem hann gerir með glöðu geði. Þau hjón eru bæði í námi með stórt heimili en kvarta ekki. Hann færir björg í bú um leið og hann býr í haginn fyrir hópinn sinn inn í veturinn.

Sem er jú ekki frétt  út af fyrir sig, eða hvað?

Það er hins vegar frétt að Árni Johnsen söng fyrir kunningja sinn hjá einhverjum manni sem býr í húsi Jóns Ásgeirs! Og tók ekki fyrir það túskilding með gati.

Ég spyr, er allur okkar frændbálkur og fjölskylda  lýtalaust fólk, já eða við sjálf?

Gæti það komið við kauninn ef grannt skoðað?

Hvað gæfi það í aðra hönd að fara nú að selja Nornarveiðar? Það er sýnist mér búmannshola sem vert er að gefa gaum.


Haldiði ekki að kærasta mannsins míns númer 1 hafi verið hérna!

Ódámurinn, hvað vildi hún upp á dekk? Ég hélt að ég væri í skemmtiferð. Í Grundarfirði. Það sem á mann er lagt.

Ég og kærasta´mín múmer eitt.Ég hélt að við hjónin værum í skemmtilegu sumarfríi svo dynja þessi ósköp yfir!

Hún kemur labbandi niður bryggjuna "dillandi" sér og spyr þann gamla: Hvað heitir þessi fallegi bátur?

Hann mundi það ekki sá gamli !

Hann hét áður Steinunn umlaði hann.

Hallgerður " mín" taktu nú eina mynd af okkur!

Sem ég gerði  til eins og hertur handavinnupoki.

Og útkoman auðvitað hallærisleg. OK. Þau myndast ágætlega. Enda er ég annálaður ljósmyndari.

Auðvitað getur fólk pósað sem þau gerðu . Að öllu gamni slepptu er þetta gullfallegt fólk. Með hjartað á réttum stað.Heart Eyjakonan Elva Ósk og peyinn frá Raufarhöfn..

 


Þá liggur þetta fyrir.

Bæði Belgingur og sú Norska segja lag að sigla aðfaranótt mánudags inn í Faxaflóann. Sem er langur.

Langbrókin tekur rútu úr Grundarfirði klukkan 5 á sunnudag. Skipherinn siglir inn í mánudaginn einn.

Svona er ég nú harðbrjósta. Þá er ég ekki að tala um hvelfdan barn heldur sjálfhverft innræti.

 Sú sjálfhverfa metur stöðuna þannig að vont sé að vera með skíthrætt fólk um borð. Rétt mat hjá Langbrókinni. Ég verð 3 tíma heim í Naustabryggju en maðurinn minn 14 tíma. Nú þegar er komin aðskilnaðarkvíði.

Þetta frí eins og áður sagði, hefur verið fallegt ævintýri frá upphafi. Allt hefur sinn tíma. Og núna tekur alvara við...

 


Treystirðu þér upp stigann?

Treysti ég mér? Þú talar við mig eins og sextuga kerlingu! Auðvitað treysti ég mér upp. Ekki tefur það mig perustefnið...W00t

Stiginn.

Fallegi hafnarstjórinn hér í Grundarfirði bað okkur að færa Goluna í tæpan sólahring því von væri á skemmtiferðaskipi tveimur frekar en einu.

Við mættu leggjast utan á Haukabergið á meðan. Ekkert mál sagði Kapteininn óvenju mjúkmáll. Karlmenn! Veit að hann væri ekki svona stimamjúkur ef hafnastjórinn væri karl á sama aldri. Er bara alveg klár á því.

Hafnarstjórinn er með aðstöðu í fallegu húsi hér rétt fyrir ofan okkur og Stjáni Blái gerir sér upp erindi ferð eftir ferð hann þarf svör við svo mörgum spurningum eins og til dæmis hvað búi hér margir!

Hann segist ekki muna eftir flottari þjónustu frá hendi hafnarstjóra og hefur hann þó sopið þær margar fjöruna.

Aftur að stiganum auðvitað tek ég hann með annarri, þó engin taki eftir lipurð minni Pinch..


Bátafólkið hætt að nenna að þvo á bretti

Enda líka þetta flotta þvottahús hér í Grundafirði.

Grundafjörður kom okkur báðum skemmtilega á óvart. Öll hús í topphirðu og allt umhverfi. Núna um helgina er hátíð hjá innbyggjurum og gestum sem eiga leið fram hjá. Allir velkomnir.

Æ fleiri sveitarfélög efna til fagnaðar einhverja helgina í júlí og flestum er kunnugt um heiti þeirra. Grundfirðingar kalla sína : Góðir dagar. Hófstillt nafn en spennandi. Bátafólkið ætlar að taka þátt.

Við höfum komið víða við í 5 ár en hvergi fengið aðrar eins móttökur og hér. Hafnarstjórinn tók á móti okkur falleg ung kona og tók endann, bauð okkur velkomin í þá hreinlegustu og flottustu höfn sem við höfum séð.

Hrunið kom víst ekki hingað sem betur fer. Hér er okkur boðin góðan dag sama hvern við hittum. Kannski erum við Reykvíkingar að sigla inn í þetta fjölskylduvæna umhverfi sem við sjáum úti á landi? Þar sem fólk virðist hafa tíma til að njóta augnabliksins sem kemur jú aldrei aftur.

Kannski er ein afleyðing hrunsins sú að við förum að spjalla saman og njóta samvista við fólkið okkar.

Okkur var gefin þorskur í Grundarfirði.Eldsnemma í morgun fóru tveir vinir út á fjörð á lítilli skel enda er víst krökkt af þeim "GULA"

Nema hvað, þeir komu færandi hendi með í kvöldmatinn fyrir okkur, glænýjan þorsk sem verður pönnusteiktur með rjóma og kálmeti hverskonar.

Þetta er eitt besta frí sem við höfum átt saman.

Eftir helgina verður siglt heim á leið, ég tek rútuna í bæinn ef spáin er þess eðlis. Hérahjartað er á sínum stað Heart Talandi um það, af hverju hérahjarta þegar verið er að tala um skræfur?


Það vantar perustefni á Golu RE 945.

Golan er auðvitað frábært sjóskip, en svona 7 til 10 metrum á móti er leiðinlegt um borð. Stjáni Blái er ekki sammála mér þar og það er í lagi mín vegna.

Ég er held ég, orðin "Gamall sjóhundur" eins og Yngvi Hrafn nefnir sig en hann mun hafa farið hringinn með Esjunni forðum. Eða með uppsafnaða reynslu af Íslandsmiðum.

Þegar við siglum í 7 til 10 á móti fer gamanið að kárna hjá "meintum" Stýrimanni sem notar gamalt vegakort af Íslandi til að átta sig á aðstæðum.

 Borin er full virðing fyrir því um borð.

Hún heggur svo þessi elska.

Enda smíðuð sem skemmtibátur en ekki fallbyssa. Að ferðast um höfin með sífeldum rassskellum er ekki skemmtisigling.

Talandi um þetta við "Fullmektugan" Skipper um borð benti hann á að það væri perustefni um borð!. Meira að segja innan borðs!.

Já þú meinar karlinn minn. En hvernig er það að virka féllir þú útbyrðis?

Ég flýt ástin mín. Einmitt elsku karlinn. Þá erum við í góðum málum.


Gola í Grundarfirði.

Gola í Grundarfirði.Við komum hingað í Grundarfjörð um eitt leitið í dag. Hafnarvörðurinn var mættur á bryggjuna, til að taka á móti endanum og bjóða okkur velkomin.

Aðstaðan hér er frábær, með sérstakri flotbryggju fyrir gestabáta. Við höfum siglt hringinn á Golu og því komið í margar hafnir. Þessi aðstaða toppar allt.

Ekki það að við fáum mjög góðar móttökur, hvar sem við komum. Það er að segja úti á landi. Tölum ekki um Reykjavík ógrátandi. Best er að hafa alltaf samband við hafnarvörð fyrirfram, óska eftir plássi og segja hvenær við erum væntanleg.

 Hér er þvottahús og nýtum við okkur að láta þvo kojufötin, og annað sem við höfum ekki mulið úr jafn óðum.

Dvölin í Stykkishólmi var skemmtileg, í frábæru veðri. Velvild frá hafnarvörðum, við að koma okkur fyrir, en höfnin er stút full. Næsta sumar verður komin gestabryggja í Hólminn. Stykkishólmur er fallegur bær, nærri því eins fallegur og Raufarhöfn, en fyrr má nú rota, en dauðrota.

Okkar heppni og óvænt, hér í Grundarfirði er bæjarhátíð, "Gleðidagar í Grundarfirði" um helgina. það verður gaman að gleðjast með Grundfirðingum og þeirra gestum. Kannski hitti ég þá fermingarbræður, Ása og Sigurberg. Ég vann í nokkur ár með þessum sóma drengjum og sonum Grundafjarðar. Með Ása í Kísiliðjunni, en Sigurberg hjá Eimskip.


Þú mígur út fyrir!

Hver, ég? Já þú!

Hverslags dónaskapur er þetta maður konur pissa ekki út fyrir.

Jú, þú áréttaði elskuhuginn. Ég hef rannsakað það síðustu vikuna hér um borð. Þetta er bara ekki rétt fullyrti ég. Jú, þetta er hárrétt ítrekaði sjarmörinn.

Getur umræðan orðið meira rómó en þetta?

Um hvað ertu að tala maður spurði ég og það var komin undiralda um borð. Það sem ég er að segja þú mígur fram hjá. Gætir þú notað penna orðalag ? Orðalag? Þetta er málið sem ég tala manneskja.

Þú hefur sum sé vaktað ferðir mínar á WC og liggur með þessa vísindalegu könnun, og það án þess að ég viti? Jebb það hef ég gert. Hélt áður að klósettið væri eitthvað að gefa sig.

Umræðan þyngdist skal ég segja ykkur og þeir metrar sem mælast á Stórhöfða í Eyjum eru gola í samanburði við allt um vefjandi kærleikann um borð í Golu RE 945.

Þó fór nú svo að lokum að mannskr..hafði rétt fyrir sér. Málið kjaftaðist upp í það að ég hef frá unglingsaldri vanið mig á að pissa þannig að engin vitni eru að því sem ég er að bardúsa á náðhúsinu. Halo...

Og hallæris agnarsmáa klósettið í Golur RE 945 gerir ekki ráð fyrir "Stássdömum" Sem þurfa hvorki að hægja sér til baks eða kviðar. W00t


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband