8.7.2008 | 21:10
Gola RE 945 er komin til Keflavíkur.
Við fórum frá Eyjum á mánudagsmorgun, sigldum í blíðu, logni og þoku til Grindavíkur. Vorum þar síðastliðna nótt, sigldum hingað til Keflavíkur í dag, eftir að hafa farið í sund í Grindavík. Framhaldið er ekki ákveðið, nema við verðum ekki í Reykjavík fyrr en í næstu viku.
Þegar við vorum farin frá Eyjum sáum við að gleymst hafði að taka kost. Við áttum um borð brauð, kartöflur, sultu, bauk af fiskbúðing frá Ora og skot í byssuna. það var veislumatur um kvöldið, en vegna fuglafriðunarlaga get ég ekki sagt ykkur hvað var á matseðlinum.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.