Bloggfærslur mánaðarins, apríl 2013
25.4.2013 | 13:57
Neisti seldur.
Gengið var frá sölu á Neista í dag. Hann er 10,03 m. langur, breidd 3,15 m. Vél 350 hp. Volvo.
Nýir eigendur eru Kristján og Ingibjörg. Áhöfnin á Golu RE 945 óskar þeim innilega til hamingju með þennan glæsilega bát.
Steini og Helga, fyrrverandi eigendur Neista hafa ákveðið að hætta sportbátaútgerð, því miður.
Það hefur verið gaman að ferðast með þeim. Ég hef ekki tölu á því hvað við erum búin að vera þeim oft samferða í Breiðafjörð, Vestfirði, Ísafjarðardjúp, Jökulfirði, Strandir, Hvammsvík, Keflavík, Akranes, Arnarstapa, svo mætti lengi telja.
Kristján og Ingibjörg settu Súlu upp í kaupin. Súla verður seld.
Svo skemmtilega vill til að fyrir fjórtán, eða fimmtán árum, áttu Steini og Helga Súlu.
Hér er Súla á siglingu í Hvalfirði síðastliðið sumar.
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 15:51 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)