21.7.2010 | 20:42
Það vantar perustefni á Golu RE 945.
Golan er auðvitað frábært sjóskip, en svona 7 til 10 metrum á móti er leiðinlegt um borð. Stjáni Blái er ekki sammála mér þar og það er í lagi mín vegna.
Ég er held ég, orðin "Gamall sjóhundur" eins og Yngvi Hrafn nefnir sig en hann mun hafa farið hringinn með Esjunni forðum. Eða með uppsafnaða reynslu af Íslandsmiðum.
Þegar við siglum í 7 til 10 á móti fer gamanið að kárna hjá "meintum" Stýrimanni sem notar gamalt vegakort af Íslandi til að átta sig á aðstæðum.
Borin er full virðing fyrir því um borð.
Hún heggur svo þessi elska.
Enda smíðuð sem skemmtibátur en ekki fallbyssa. Að ferðast um höfin með sífeldum rassskellum er ekki skemmtisigling.
Talandi um þetta við "Fullmektugan" Skipper um borð benti hann á að það væri perustefni um borð!. Meira að segja innan borðs!.
Já þú meinar karlinn minn. En hvernig er það að virka féllir þú útbyrðis?
Ég flýt ástin mín. Einmitt elsku karlinn. Þá erum við í góðum málum.
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 21:27 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
21.7.2010 | 16:18
Gola í Grundarfirði.
Við komum hingað í Grundarfjörð um eitt leitið í dag. Hafnarvörðurinn var mættur á bryggjuna, til að taka á móti endanum og bjóða okkur velkomin.
Aðstaðan hér er frábær, með sérstakri flotbryggju fyrir gestabáta. Við höfum siglt hringinn á Golu og því komið í margar hafnir. Þessi aðstaða toppar allt.
Ekki það að við fáum mjög góðar móttökur, hvar sem við komum. Það er að segja úti á landi. Tölum ekki um Reykjavík ógrátandi. Best er að hafa alltaf samband við hafnarvörð fyrirfram, óska eftir plássi og segja hvenær við erum væntanleg.
Hér er þvottahús og nýtum við okkur að láta þvo kojufötin, og annað sem við höfum ekki mulið úr jafn óðum.
Dvölin í Stykkishólmi var skemmtileg, í frábæru veðri. Velvild frá hafnarvörðum, við að koma okkur fyrir, en höfnin er stút full. Næsta sumar verður komin gestabryggja í Hólminn. Stykkishólmur er fallegur bær, nærri því eins fallegur og Raufarhöfn, en fyrr má nú rota, en dauðrota.
Okkar heppni og óvænt, hér í Grundarfirði er bæjarhátíð, "Gleðidagar í Grundarfirði" um helgina. það verður gaman að gleðjast með Grundfirðingum og þeirra gestum. Kannski hitti ég þá fermingarbræður, Ása og Sigurberg. Ég vann í nokkur ár með þessum sóma drengjum og sonum Grundafjarðar. Með Ása í Kísiliðjunni, en Sigurberg hjá Eimskip.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
20.7.2010 | 19:37
Þú mígur út fyrir!
Hver, ég? Já þú!
Hverslags dónaskapur er þetta maður konur pissa ekki út fyrir.
Jú, þú áréttaði elskuhuginn. Ég hef rannsakað það síðustu vikuna hér um borð. Þetta er bara ekki rétt fullyrti ég. Jú, þetta er hárrétt ítrekaði sjarmörinn.
Getur umræðan orðið meira rómó en þetta?
Um hvað ertu að tala maður spurði ég og það var komin undiralda um borð. Það sem ég er að segja þú mígur fram hjá. Gætir þú notað penna orðalag ? Orðalag? Þetta er málið sem ég tala manneskja.
Þú hefur sum sé vaktað ferðir mínar á WC og liggur með þessa vísindalegu könnun, og það án þess að ég viti? Jebb það hef ég gert. Hélt áður að klósettið væri eitthvað að gefa sig.
Umræðan þyngdist skal ég segja ykkur og þeir metrar sem mælast á Stórhöfða í Eyjum eru gola í samanburði við allt um vefjandi kærleikann um borð í Golu RE 945.
Þó fór nú svo að lokum að mannskr..hafði rétt fyrir sér. Málið kjaftaðist upp í það að ég hef frá unglingsaldri vanið mig á að pissa þannig að engin vitni eru að því sem ég er að bardúsa á náðhúsinu. ...
Og hallæris agnarsmáa klósettið í Golur RE 945 gerir ekki ráð fyrir "Stássdömum" Sem þurfa hvorki að hægja sér til baks eða kviðar.
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 23:13 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
20.7.2010 | 11:27
Bátafólkið á þriggja ára brúðkaupsafmæli í dag 20.07.10
Sagan segir það heita Leðurbrúðkaups afmæli? Af hverju leður er mér hulið, alveg gjörsamlega. Hvað okkur hjón varðar erum við ekki töffarar mér dettur eitthvað perralegt í hug þegar ég heyrir þetta orð!
Hvorugt okkar erum hardkor karaktera eða masókistar. Veit einhver hvað þetta leður þýðir?
Við höfum þekkst í fimm og hálft ár og erum farin að kunna þokkalega vel við hvort annað. Já bara nokkuð vel. Ég elska peyjann og við erum enn ástfangin en það sem er best, er vináttan sem er sönn og gegnheil.
Við upplifum bæði að hafa þekkst svo miklu lengur en þessi rúmu fimm ár.
Þegar ég vaknaði í morgun sagði ég við minn heitt elskaða: Til hamingju með daginn ástinn mín.
Ég vildi svo sannarlega eiga svipinn á karli á filmu til að sýna ykkur! Þessi svipur sem kemur á mann sé maður staði að verki við eitthvað ekki gott.
Það sem meira er ég heyrði braka í heilasellum hans þar sem hann barðist við að muna af hverju? Hann: sömuleiðis ástin mín. !
Ég ákvað að þegja og kanna hvort hann hefði munað. Geispi, jæja við ætlum að sigla í Grundarfjörð í dag er það ekki sagði gamli?
Já.
Leggst það ekki vel í þig?
Jú.
Þrúgandi þögn.
Heyrðu, hvaða dagur er í dag spurði hann?
20.07.10 Árni!
Þá eigum við enn eftir tíu daga af ferðinni.
Já.
Kíki hann hér inn í dag þá sér hann hvað hann er rómantískur maður. Sem hann er ....
En ekki eftir neinni bók. Hann er þegar upp er staðið einn rómantískasti peyi sem ég hef hitt..En hann tekur það eigin forsendum. Sem svínvirkar.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
18.7.2010 | 17:14
Hann ku halda sér vel maðurinn minn..
Og þá er verið að tala um hvað hann lítur vel út "miðað við aldur" Við erum allt okkar líf að miða við eitthvað. Höfum þessi býsn fyrir því að verða menn með mönnum en fljótlega fer það að gleða hvað við (Mörg okkar ) lítum vel út þrátt fyrir að vera orði 25 ára! Hann er til vinstri á þessari mynd, hinn heitir Jónas Hreinsson.
Við hjónakornin gengum á Súgandisey hér í Stykkishólmi og þar var krökkt af fólki í eindæma veðurblíðu. Þegar upp var komið vildi maðurinn mynda sína við vitann sem var auðsótt mál. Fyrir neðan okkur lá ung og falleg kona sem sagði við manninn sinn: Af hverju tekurðu aldrei mynd af mér?
Maðurinn minn brást "karlmannlega við og tók myndir af henni. Við tókum tal saman þetta var skemmtileg kona á allra besta aldri. Spurt : Hvaðan ertu og allur sá pakki. Hún var auðvitað utan af landi það er bara eitthvað sem einkennir það fólk. Eitthvað gott.
Sagðist vera fædd og uppalin á Bláfeldi sem er veðurathugunarstöð í dag.
En býr í Ólafsfirði. Slíkt var denið hjá manninum mínum að ég gleymdi að spyrja hvort hún þekkti hana Stínu Adolfs frænku mína.
Í samtalinu var þreifað á hvort hún þekkti þennan eða hinn að norðan..Kapteininn sagði, auðvita manstu ekki eftir því þetta var fyrir 100 árum. Ertu klikk þú ert svo ungur sagði þessi fallega unga kona!
Takk sagði sá gamli og veðraðist allur upp. Þarna sá ég að gamlir símastaurar geta blómgast aftur.
Lífið er gjöfult alla vega fyrir þau okkar sem líta vel út miðað við, veit það nokkur..?
Myndirnar af umræddu fólki sýna auðvitað að hér er engu logið.
Dægurmál | Breytt 19.7.2010 kl. 10:20 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
17.7.2010 | 11:31
Snemma beygist krókurinn, til þess er verða vill.
Jóndi Stennu sendi mér þessa skemmtilegu mynd. Á henni eru undirritaður, Ásgeir Svenna og Erna Bulla.
Við erum þarna að róa á höfninni heima á Raufarhöfn, í stafa logni, sem oftast er þar. Það er sko ekkert bensínleysi að trufla för þarna.
Það er annars að frétta frá okkur á Golu, að við erum í enn einum logn og sólardeginum hér í Hólminum.
Mér dettur í hug saga sem ég heyrði fyrir löngu af karli frá Grindavík. Hann var staddur á sólarströnd í fyrsta og eina sinn. Þegar hann á fimmta degi vaknaði í logni og sól. Þá heyrðist karlinn tauta, hér er alltaf sama helvítis veðrið, hingað fer ég aldrei aftur.
En við eigum eftir að fara aftur í Breiðafjörð.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
16.7.2010 | 12:45
Nú er verið á brettinu og það skuldlaust
Enda brakandi þurrkur hér í Hólminum. Ekkert vatn að fá í Flatey eins og alþjóð veit. Stýrimaðurinn muldi úr fatnaði en Skipstjórinn vatt, hann er svo sterkur þessi elska.
Honum er margt til lista lagt drengum.
Eitthvað vöktu þessi tilþrif hans athygli því hann var myndaður í bak og fyrir af túristum. Honum leiddist það ekki!
Það hefur vakið athygli okkar allstaðar sem við erum, að túristar leggja allir leið sína niður á höfn.
Margir búa auðvitað á stöðum þar sem aldrei sést il sjávar. Engin önnur skýring.
Hér í Hólminum eru mörg falleg endurgerð hús sem hrein unun er að skoða. Í sumum er búið en öðrum einhver starfsemi..
Auðvitað sér maður danska yfirbragðið á þeim. Ég gæti svo innilega hugsað mér að búa í svona húsum. Það er einhver rómantík yfir þeim og trúlega meira elskast?
Súla kom siglandi frá Flatey í morgun og fyrsta verk hjónanna var bað í sundlauginni. Úti í Flatey eru enn Stjarnan, Helga Sigtryggs, og Kristín og Ýmir. Óvenju margir bátar.
Sem er skrítið miðað við flotann sem liggur bundin við Höfn í Snarfara..Jú Marás. Neisti og Lilja voru hér á dögunum hafandi farið vestur fyrir..
Það er ekkert atriði hjá okkur að flanda um allan sjó ekki síst ef veðrirð er svona gott. Allt til alls um borð nema sturta þó smúla megi mannskapinn aftrá. Kær kveðja til ykkar sem kíkið inn á bloggið okkar..
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 13:07 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
15.7.2010 | 20:44
Er drengurinn þinn um borð?
Spurði gamall trillukarl í dag? Nei nei hann er fyrir sunnan, ný komin af Hornbjargi úr göngu með konunnin sinn.
Nú, er þetta ekki sonur þinn áréttaði sá gamli? Hver, spurði ég? Sá sem kom siglandi á Golu RE 945 inn í Stykkilshólm hélt hann áfram.
Um hvað ertu að tala manndjöfull, nú var farið að fjúka í Stýrimanninn.
Mér finnst ég kannast við hann, er hann ekki frá Raufarhöfn? hélt hann áfram.
Sonur minn? Nei hann fæddist á Egilstöðum upplýsti ég þennan leiðinda gaur.
Nei hann fæddist á Raufarhöfn hélt gleðigjafinn áfram.
Þarna var fyrir mína parta komið að kveðjustund, djöf..sem karlinn var ruglaður!
Hann heitir Árni Pálsson ég man svo vel eftir honum.
Hann er maðurinn minn! Jæja gæskan ertu konan hans? Jáháaaaa!
Hvað ertu gömul "væna" spurði húmoristinn?
Alveg nógu gömul kallinn minn.
Lastu Önnu frá Stóruborg í æsku hélt þessi leiðindagaur áfram.
Nú fylltist mælirinn...Komdu þér upp á bryggju karl andskoti og láttu ekki sjá þig aftur.
Það koma ekki allir dagar i böggli sagði amma mín. Þetta var einn af þeim....
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 21:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
14.7.2010 | 22:58
Björgunaræfing hjá áhöfninni á Stjörnu.
Stjarnan kom hingað í Flatey í dag. Guðmundur skipstjóri ákvað, eftir að þau höfðu lagst á legu hér í Hafnarey að halda björgunaræfingu, um hvernig ætti að meðhöndla slöngubát.
Fyrst var bátnum hent í sjóinn. Við á Golu og farþegar á Stjörnu horfðum opinmynt á aðfarir.
Fyrst fór Guðmundur skipstjóri um borð í slöngubátinn. Síðan stökk skipstjóraflúinn um borð, þó þannig að tryggt væri að bátnum myndi hvolfa. Það gekk eftir.
Þau hurfu í djúpið. Fyrst skaut Guðmundi upp. Guðmundur lýsti aðstæðum, um leið og hann tróð marvaðan. Síðan skaut frúnni upp, með fangalínuna á bátnum í kjaftinum. Hún synti knálega að Stjörnunni, þar sem Guðmundur tók bátinn og snéri honum á réttan kjöl, af ótrúlegu öryggi, og greinilega æfðum handtökum.
Það var samdóma álít allra viðstaddra að önnur eins tilþrif höfum við ekki séð.
Súla kom síðar í dag. Þau misstu af æfingunni. Ég vona að það komi ekki að sök.
Við á Golu siglum í Hólminn á morgun, orðin vatnslítil. Í Hólminum eigum við von á börnum og barnabörnum í heimsókn á föstudag.
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 23:07 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
14.7.2010 | 16:20
Bensínlaus á miðjum Breiðafirði..
Er slæmt svona ykkur að segja, öll þessi sker og Eyjar sem enn hefur ekki tekist að kortleggja að maður tali nú ekki um strauma hingað og þangað. Hvað veit ein kvennmansnift um strauma.
Mér vill alltaf eitthvað til var mín fyrsta hugsun og skimaði í allar áttir, ekki kjaftur svo langt sem augað eygði.
Af hverju ég var það fyrsta sem poppaði upp í mínum sjálfhverfa kolli. Ferðin hefur gengið svo vel með einni undantekningu sem ég er búin að gleyma núna. Minnir að það hafi haft með bræluskratta að gera.
Hvar voru allir, hér er víst alltaf krökkt af ferðamönnum.. Nú voru góð ráð dýr ég er ekki að tala um verðið á bensíni heldur bensínskortinn, ég skyldi borga það verð sem upp yrði sett..
Átti ég að leggja ára í bát? Nei, þvert á móti ég átti auðvitað að taka þær upp af botninum og hefjast handa, ekkert annað og róa í land. Og læra það að utanborðsmótor þarf bensín. Og það nóg af því. Svo nú réri Langbrókin í land í fyrsta skipti hratt og örugglega og hugsaði til Þuríðar formanns með með meiri skilningi en áður.
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 17:14 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)